Núna á miðvikudaginn 29. apríl kl. 9:00 hefst skráning á golfleikjanámskeiðin okkar fyrir sumarið.
Námskeiðin eru frábær leið fyrir krakka til að kynnast golfinu sem ekki hafa stundað íþróttina áður en svo eru námskeiðin á sama tíma líka hugsuð fyrir þá krakka sem eru nú þegar að æfa hjá okkur golf eða hafa sótt námskeið hjá okkur áður. Námskeiðin eru fyrir börn á grunnskólaaldri (fædd 2011-2019).
Á síðasta ári sóttu hátt í 300 börn eitt eða fleiri námskeið hjá okkur og yfir 150 börn voru á biðlista sem komust ekki að á námskeið. Við erum að reyna allt sem við getum til að minnka biðlistann eins og hægt er fyrir krakkana okkar sem vilja koma á golfleikjanámskeið í sumarfríinu en mikilvægt er að þau börn sem ætla á námskeið skrái sig sem fyrst áður en fyllist á námskeiðin. Námskeiðin í sumar verða 8 talsins.
Nánari upplýsingar um námskeiðsdaga og skráningu hér:
