Kæru félagar,
Skráning er nú hafin í fullorðinsflokkum fyrir 62. Meistaramót Nesklúbbsins sem haldið verður dagana 4. júlí – 11. júlí. Skráning fer fram á Golfbox (smella hér).
Allt um Meistaramótið 2026 má nú sjá á heimasíðu klúbbsins, nkgolf.is/Meistaramótið.
Taflan sem sýnir áætlaða leikdaga má sjá með því að smella hér en hún sýnir hvaða daga viðkomandi flokkar leika. ATHUGIÐ: taflan sýnir ekki hvenær eða í hvaða röð viðkomandi flokkar leika hvern dag heldur eingöngu á hvaða dögum þeir leika. Ekki er unnt að birta frekari upplýsingar um rástíma hvers flokks fyrr en skráningu í mótið er lokið.
Skráningu í mótið lýkur stundvíslega kl. 22.00 miðvikudaginn 1. júlí og verður endanleg niðurröðun flokka sem og rástímar fyrsta dags birtir á heimasíðunni og í Golfbox föstudaginn 3. júlí
Lágmarksfjöldi í hvern flokk eru þrír leikmenn. Ef ekki næst tilskilinn fjöldi í einhvern flokk verður hann felldur niður og þátttakendum sem höfðu skráð sig í viðkomandi flokk verður gefinn kostur á að skrá sig í annan flokk.
Í mótsstjórn verða:
Erling Sigurðsson
Guðrún Valdimarsdóttir
Haukur Óskarsson
Jóhann Karl Þórisson, formaður
Þorsteinn Guðjónsson

