Kæru félagar,
Nú styttist í Meistaramótið og lýkur skráningu í mótið á morgun miðvikudag kl. 22.00. Reglur golfsins eru margar og fyrir flesta hreinn ógjörningur að kunna þær allar. Enda ætlast enginn til þess. Hinsvegar á það að vera metnaður hvers að reyna eftir fremsta megni að leika golf eftir þeim reglum sem settar eru.
Á morgun, miðvikudaginn 1. júlí ætla ég að bjóða þeim sem vilja upp á stutta yfirferð á helstu golfreglunum sem nær yfir flestar þær spurningar sem koma reglulega upp á Nesvellinum. Til dæmis, hvað geri ég ef ég slæ út í rautt svæði, ef ég fer í glompu og treysti mér ekki til að slá upp úr henni, ef ég slæ rangan bolta og fleira og fleira. Svo verður að sjálfsögðu opið fyrir spurningar.
Þetta verður á léttum nótum og með mér verður Erling Sigurðsson landsdómari í golfi og félagsmaður í Nesklúbbnum.
Haldið í golfskálanum á morgun miðvikudag kl. 17.30. Þetta er opið öllum félagsmönnum og engin skylda að vera að fara taka þátt í Meistaramótinu.
Kostar ekkert, bara mæta ef þú vilt læra meira en nauðsynlegt að skrá sig með því að smella hér. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á nkgolf@nkgolf.is
Kveðja,
Haukur
Framkvæmdastjóri

