laugardaginn 6. júní, verður OPNA NESSKIP haldið á Nesvellinum. OPNA NESSKIP er 18 holu opið mót þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Leikið verður eftir bæði punkta og höggleiks fyrirkomulagi og verða veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Mótið er opið …
GOLF14 mót á Nesinu – þú færð 50% afslátt á öðrum velli á meðan
Kæru félagar, Næstu helgi mun Nesklúbburinn halda tveggja daga golfmót í samstarfi við Golfsamband Íslands. Mótið er hluti af mótaröðinni GOLF14 sem eins og nafnið gefur til kynna er haldið fyrir börn 14 ára og yngri hvaðanæva af landinu. Það ber að líta á það sem bæði heiður og um leið mikla viðurkenningu á barnastarfi klúbbsins þegar Golfsambandið leitar til …
Frá Stuart vallarstjóra
Hér eru nokkur skilaboð og upplýsingar frá Stuart vallarstjóra – íslensk þýðing er fyrir neðan þá ensku. Hello Members, I hope you are all enjoying the good weather. Although it has been a little windy at times, it has been fantastic to finally see some sunshine and, even better, so many familiar faces back out enjoying the golf course …
Formannspistill
Kæru félagar, Sumarið er loksins komið Eins og við þekkjum er Hreinsunardagur Nesklúbbsins hinn sanni sumarboði, en hann fór fram laugardaginn 11. maí síðastliðinn. Mig langar fyrst og fremst að þakka kærlega öllum þeim rúmlega 100 sjálfboðaliðum sem mættu og lögðu hönd á plóg. Þetta frábæra framlag, en við erum að tala um geysilegt vinnuframlag sem hefur bein áhrif á …
Reglur vegna nýframkvæmda
Kæru félagar, Eins og fram hefur komið að þá var farið í mjög veigamiklar framkvæmdir til þess að verja göngustíginn í kringum völlinn. Mest er þetta við 7. braut en nær líka til 1., 2. og 3. brauta.Í gær var sáð í þetta allt saman með sérstakri blöndu af fræjum sem á að gera það að verkum að fræin annars …
Golfleikjanámskeið Nesklúbbsins 2026
Núna á miðvikudaginn 29. apríl kl. 9:00 hefst skráning á golfleikjanámskeiðin okkar fyrir sumarið. Námskeiðin eru frábær leið fyrir krakka til að kynnast golfinu sem ekki hafa stundað íþróttina áður en svo eru námskeiðin á sama tíma líka hugsuð fyrir þá krakka sem eru nú þegar að æfa hjá okkur golf eða hafa sótt námskeið hjá okkur áður. Námskeiðin eru …
Gleðilegt golfsumar
Gleðilegt sumar kæru félagar, Sumargjöfin í ár er langþráð uppfærsla á Golfbox appinu sem héðan í frá heitir „Mitt golf“. Við mælum með að allir félagsmenn hlaði niður appinu sem er aðgengilegt í bæði „app store“ og „play store“. Allar þær aðgerðir sem við erum vön að nota verða áfram aðgengilegar í Mitt Golf. Hægt er að smella „GolfBox“ í …
Opnað fyrir rástíma í fyrramálið
Á morgun laugardag á milli kl. 11.00 og 13.00 fer fram hinn árlegi viðburður „Draumahöggið á Nesinu“. Viðburðurinn fer aðeins fram á 9. braut og í staðinn fyrir að loka öllum vellinum eins og ráðgert var hefur nú verið opnað fyrir alla rástíma á morgun, laugardaginn 6. september. Það er því um að gera að nýta sér góða veðrið sem …
Hrós á þig
Kæru félagar, Frá upphafi tímabils höfum við lagt okkur fram við að koma ýmsum skilaboðum til ykkar félagsmanna. Með þessum skilaboðum höfum við haft það markmið að biðla til ykkar félagsmanna um að taka höndum saman við að halda annarsvegar vellinum snyrtilegri og hinsvegar að halda uppi góðu flæði á vellinum – eða í raun bara á endanum að gera …
Tvö laus pláss í hjóna- og parakeppnina á morgun
Vegna forfalla er laust fyrir tvö pör í NTC hjóna- og parakeppnina á morgun. Það er geggjuð veðurspá og um að gera að taka þátt í þessu stórskemmtilega móti. Nánari upplýsingar og skráning í mótið má sjá á golfbox eða með því að smella hér. Skráningarfrestur til kl. 18.00 í dag. Ath. það þarf að skrá báða einstaklinga inn í mótið …








