Tilboð! / 17-24. nóvember Kvennaferð – Golf, spa og heilsa á Lopesan Baobab Resort 5* – Gran Canaria. Flug, 7 nætur, hálft fæði, 4-6 golfhringir á 3 golfvöllum, ferðir, Spa ofl. á 379.000 kr. Fararstjóri: Bjargey Aðalsteinsdóttir Allar nánari upplýsingar um ferðina má sjá með því að smella hér NK konur fá kr. 20.000 afslátt. Gildir til 15.sept. KÓÐI: nkkonur
Lokamót kvenna – skráning hafin
Jæja kæru NK-dömur, Nú er komið að Lokamótinu okkar þetta sumarið og ætlum við að klára sumarið með stæl. Mótið verður haldið þriðjudaginn 8. september og eru leikreglurnar eftirfarandi: Leikið er í tveimur forgjafarflokkum og miðað er við vallarforgjöf. Hámarksforgjöf gefin í mótinu er 42. Hámarksforgjöfin hefur bara með útreikninginn til verðlauna að gera en að sjálfsögðu geta allar NK-konur …
Golfreglukvöld á morgun – viltu læra meira?
Kæru félagar, Nú styttist í Meistaramótið og lýkur skráningu í mótið á morgun miðvikudag kl. 22.00. Reglur golfsins eru margar og fyrir flesta hreinn ógjörningur að kunna þær allar. Enda ætlast enginn til þess. Hinsvegar á það að vera metnaður hvers að reyna eftir fremsta megni að leika golf eftir þeim reglum sem settar eru. Á morgun, miðvikudaginn 1. júlí …
Rástímaskráningar og staðfesting á rástíma – skyldulesning
Kæru félagar, Af gefnu tilefni viljum við enn og aftur fara yfir þær reglur sem settar hafa verið fram og farið er eftir hvað varðar skráningu á rástíma og staðfestingu á rástíma. Heilt yfir stöndum við okkur mjög vel en það eru því miður of mörg tilvik þar sem klárlega þarf og er hægt að gera betur. Það er á …
Skráning er hafin í Meistaramótið 2026
Kæru félagar, Skráning er nú hafin í fullorðinsflokkum fyrir 62. Meistaramót Nesklúbbsins sem haldið verður dagana 4. júlí – 11. júlí. Skráning fer fram á Golfbox (smella hér). Allt um Meistaramótið 2026 má nú sjá á heimasíðu klúbbsins, nkgolf.is/Meistaramótið. Taflan sem sýnir áætlaða leikdaga má sjá með því að smella hér en hún sýnir hvaða daga viðkomandi flokkar leika. ATHUGIÐ: …
Einnarkylfukeppni kvenna á þriðjudaginn
Kæru kríur, Einnarkylfukeppni NK kvenna verður haldin núna á þriðjudaginn, 9. júní. Leiknar verða 9 holur með einni kylfu og pútter. Stórskemmtilegt innanfélagsmót fyrir allar konur með aðild í Nesklúbbnum. Mæting er kl.17:00. Ræst verður út á öllum teigum kl.17:50 og spilaðar 9 holur. Athugið, hámarksfjöldi í mótinu eru 63 konur – skráning er hafin og það eru nokkur sæti …
Hreinsunardagurinn á laugardaginn – það vantar fleiri hendur
Kæru félagar, Hinn árlegi hreinsunardagur Nesklúbbsins verður núna á laugardaginn, 9. maí. Til þess að geta opnað völlinn að þá þarf að ráðast í fjölmörg verkefni. Ef ekki næst að klára þau á laugardaginn verðum við að bíða með að opna völlinn þar til þau verkefni klárast. Skráningin gengur ágætlega en betur má ef duga skal. Við biðjum þig því …
Kick-off kvöld kvenna – skráning er hafin
KÆRU NK KONUR Nú fer að styttast í að golfsumarið hefjist. Sem þýðir að nú er komið að hinu árlega Kikk-off kvöldi sem verður haldið þriðjudaginn 12. maí kl. 18.00. Skráning er hafin á Golfbox (sjá neðar) Ætlunin er fyrst og fremst að koma saman, skemmta okkur og borða létta máltíð. Hámarksfjöldi eru 80 NK konur og því gott að skrá …
Það styttist í sumarið
Kæru félagar, Nú þegar rauðar hitatölur eru í veðurkortunum, gulum lægðum fækkar og krían er komin, þýðir það bara eitt – þetta er að bresta á og framundan er geggjað golfsumar. Til þess að upplýsa ykkur aðeins um stöðuna að þá er hún eftirfarandi: Völlurinn: Það er ennþá frost í jörðu sumsstaðar á vellinum. Völlurinn er á köflum svakalega blautur …
NK konur – pútt og vipp á sunnudaginn
Kæru Kríur, Við hvetjum allar NK konur til að koma og pútta með okkur á sunnudögum í inniaðstöðu Nesklúbbsins á Nesvöllum, Austurströnd 5. Fyrirkomulagið er eins og áður – bara mæta með pútter, eina-tvær vippkylfur, 500 kall og kúlu á milli kl. 10 og 12. Það eru spilaðir tveir 18 holu pútthringir fyrir 500 kr. og mun sá betri telja. …







