Birkir Már Birgisson var á dögunum ráðinn nýr vallarstjóri hjá Nesklúbbnum. Birkir Már útskrifaðist frá Elmwood College í Skotlandi árið 2000 þar sem hann nam grasvallarfræðin. Hann er hokinn af reynslu í umsjá golfvalla hér á landi og kemur til okkar frá Kiðjabergi þar sem hann hefur verið Framkvæmda- og vallarstjóri undanfarin þrjú ár við góðan orðstír. Þar áður hefur …
Formannspistill
Heil og sæl kæru félagar, Bændaglíman sem fram fór núna um síðastliðna helgi er öllu jöfnu síðasta mót sumarsins og um leið áminning um að haustið sé ekki langt undan. Ánægjulegt golfsumar er að baki þótt veðrið hefði vissulega mátt vera betra, alla vega á köflum. Samt sem áður hefur völlurinn verið í frábæru standi í sumar og eiga vallarstarfsmenn …
Veðurspáin orðin góð fyrir Bændaglímuna á laugardaginn – skráningu lýkur á morgun
Veðurguðirnir hafa heldur betur tekið við sér og er spáin fyrir laugardaginn orðin góð. Við ætlum því að framlengja skráningarfrestinn í Bændaglímuna til hádegis á morgun, föstudag og vonum að sem flestir séu tilbúnir í að kveðja sumarið með okkur í þessu skemmtilega móti. Bændur í ár verða þeir Þór Sigurgeirsson Bæjarstjóri og Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og því ljóst að þetta …
Tryggðu þér fastan tíma í golfhermi í vetur á Nesvöllum
Birtu er tekið að bregða og veturinn ekki langt undan. Kylfingar þurfa þó ekki að örvænta því golfið er nú orðið að heilsárs íþrótt með tilkomu okkar glæsilegu inniaðstöðu á Nesvöllum. Við eigum enn eitthvað af lausum tímum og nú er rétti tíminn til að tryggja sér fastan tíma í golfhermi í vetur á Nesvöllum. Sendið póst á nokkvi@nkgolf.is eða …
Bændaglíman á laugardaginn – kveðjum sumarið saman
Þá er það mótið sem allir hafa beðið eftir. Bændaglíma Nesklúbbsins 2022 verður haldin laugardaginn 24. september. Bændaglíman sem er svo sannarlega mót á léttu nótunum og til gamans gert er jafnframt lokamót hvers sumars. Því eru félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja þetta frábæra golftímabil með stæl. Bændur í ár verða þeir Þór Sigurgeirsson Bæjarstjóri og Þorsteinn …
Viltu læra að æfa þig í golfhermi?
Golfhermarnir okkar á Nesvöllum bjóða upp á ótal möguleika til afþreyingar og golf æfinga. Í september býðst félögum Nesklúbbsins að kíkja við og fá stutta kennslu í því hvernig best er að æfa sig í golfhermunum endurgjaldslaust. Nökkvi golfkennari tekur vel á móti þeim sem þetta vilja þiggja á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum á milli 12 og 21 út september. …
Bjarni vallarstjóri lætur af störfum
Bjarni Þór Hannesson vallarstjóri hefur sagt starfi sínu lausu hjá Nesklúbbnum. Bjarni mun klára tímabilið og eftir það halda á önnur mið. Klúbburinn þakkar honum vel unnin störf undanfarin ár og óskar honum alls hins besta í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Stjórnin
Lokamót NK kvenna
Jæja kæru NK-dömur, Nú er komið að Lokamótinu okkar þetta sumarið og klára sumarið með stæl. Mótið verður haldið þriðjudaginn 6. september og eru leikreglurnar eftirfarandi: Við viljum vera vissar um að ná að klára fyrir myrkur og því er mæting kl. 16.00 og ræst verður út kl. 16.30 á öllum teigum. Hámarksfjöldi í mótið er 70 NK-konur (við komum …
Firmakeppni – úrslit
Firmakeppni Nesklúbbsins fór fram á Nesvellinum í dag. Leikið var eftir Greensome fyrirkomulagi og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik með forgjöf ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 brautum og næst holu í tveimur höggum á 8. braut. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: sæti: 29 högg nettó (betri síðustu 6) Icelandair Cargo: Pétur Steinn og kristján Víkingur sæti: …
Nesvellir opna 1. september – Gjafabréf og tilboð
Nesvellir hin glæsilega inniaðstaða Nesklúbbsins á Austurströnd opnar á ný eftir sumarlokun þann 1. september. Í tilefni þess er öllum klúbbfélögum Nesklúbbsins boðið að nýta meðfylgjandi gjafabréf til að prófa golfhermana okkar. Gjafabréfið gildir í eina klukkustund og þarf að nýtast í september. Hver félagi getur aðeins nýtt gjafabréfið einu sinni. Einnig býðst klúbbfélögum mánaðaráskrift (að hámarki 10 klukkustundum) að …